Félagsmenn FFR sem eru sumarstarfsmenn hjá Isavia geta sótt um styrk fyrir skólagjöldum. Styrkurinn er að hámarki 30.000 kr. og nemur styrkur aldrei hærri upphæð en útlagður kostnaður. Rafræn umsókn þarf að berast félaginu fyrir 1. september og þarf kvittun fyrir útlögðum kostnaði að fylgja með. Styrkir verða greiddir út fyrir lok september 2024. 

FFR gerir kröfu um að kvittun berist félaginu og skal kvittun vera úr bókunarkerfi viðkomandi fyrirtækis og verður ekki veitt undanþága frá því skilyrði.

Kvittun skal undantekningarlaust sýna:

  • Nafn og kennitölu félagsmanns
  • Upphæð

Félagið áskilur sér rétt til þess að hafna umsóknum ef þær uppfylla ekki ofangreind skilyrði. Engar undanþágur verða veittar eftir þann dag . Athugið að hverjum félagsmanni er einungis heimilt að senda inn eina umsókn.