• m8
  • m3
  • m1
  • m-530
  • m5
  • m6
  • m-532
  • m-531
  • m4
  • Mynd1
  • m7
  • m9
  • m2

Laugardagur 20. apríl 2024


styrkirogendurmenntun

Orlofshus

Sumarið 2021

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um vikuleigu orlofshúsa félagsins sumarið 2021.

Til þess að sækja um vikudvöl í orlofshúsi félagsins skrá félagsmenn sig inn á orlofsvef Félags Flugmálastarfsmanna ríkisins og velja flipann UMSÓKN UM ÚTHLUTUN.
Félagsmenn FFR geta sent inn allt að 5 valmöguleika í umsókninni og er boðið upp á að leigja hús í Munaðarnesi, Vestmannaeyjum og íbúð á Akureyri.

Leigutími er mánudagur til mánudags.
Leiguverð er óbreytt 23.000 kr. fyrir vikuleigu, auk 24 punkta af punktainneign félagsmanns.

Umsóknarfrestur er til og með 28. mars.

Tenerife yfir jól og áramót

Einnig er opið fyrir umsóknir um jól og áramót á Tenerife þ.e. 22. desember 2021 til 5. janúar 2022. Verð fyrir þessar 2 vikur er 70.000 kr. og 36 punktar.

Umsóknarfrestur er til og með 28. mars.

Búið að opna fyrir bókanir á Tenerife til loka mars 2022.

Sumarglaðningur

Stjórn FFR hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum upp á niðurgreiðslu gistinátta á gistiheimilum, hótelum, í ferðavögnum, sumarhúsum og/eða húsbílum innanlands í sumar með sambærilegum hætti og síðasta sumar. Nánari upplýsingar verða sendar út síðar.