|
FFR hefur þrjú sumarhús til umráða sem leigð eru félagsmönnum gegn vægu gjaldi. Húsin eru á Akureyri, í Munaðarnesi og Vestmannaeyjum. Nánar um húsin neðar.
Úthlutun orlofshúsaOrlofsnefnd FFR auglýsir að jafnaði eftir umsóknum um dvöl í húsum félagsins í upphafi árs með fjölpósti á félagsmenn.
Umsóknir 2011
Hægt er að sækja um sumardvöl með tölvupósti á netfangið orlofshus@felagffr.is umsóknarfrestur er til 8. maí 2011. Umsóknir verða afgreiddar fyrir 15. maí.
Verð
Leiga í húsi nr. 42 í Munaðarnesi: Tímabil 15/5 -15/9 15.000 kr. vikan.
Leiga í íbúð við Tjarnarlund 19 Akureyri: Tímabil 15/5 -15/9 20.000 kr. vikan.
Verðin eru háð samþykki aðalfundar FFR. Staðfestingargjald er 5.000 kr. og greiðist eigi síðar en viku eftir úthlutun. Staðfestingargjaldið er óafturkræft. Við úthlutun skal það sjónamið ráða, að farið er eftir starfsaldri, hjá Flugmálastjórn og Isavia þó þannig að þeir, sem áður hafa dvalið í húsum félagsins, eiga ekki kost á dvöl aftur fyrr en fullnægt hefur verið öðrum umsóknum.
BSRB hús![]() Ath. að vitað er til þess að upp komi villan "[kennitala] finnst ekki í félagatali". Ef þið lendið í því er best að leita til okkar og við leysum úr því í samráði við skrifstofu BSRB.
Hægt er að hafa samband við orlofshúsanefnd með því að senda tölvupóst á orlofshus@felagffr.is. |
