Fréttir

Samspil lífeyris og almannatrygginga - þín framtíð

posted Jan 16, 2012 2:00 AM by Andri Örn Víðisson


Málþing BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyris og almannatrygginga verður haldið á Grand hótel Reykjavík 
þann 19. janúar nk. frá kl.13.00-16.00.
  • Benedikt Jóhannesson frá Talnakönnun kynnir niðurstöður skýrslu sem hann vann að beiðni BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun.
  • Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar, flytur erindi um víxlverkun lífeyrisgreiðslna og almannatrygginga.
  • Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, kynnir sýn stjórnvalda á verkefnin sem framundan eru í lífeyrismálum.
Málþingið er mikilvægt innlegg í umræðuna um stöðu lífeyrismála og mögulegar breytingar á framtíðarfyrirkomulagi þeirra. Því er ætlað að auka þekkingu almennings á lífeyrismálum og þátttöku ríkisins í öðrum kjörum fólks á efri árum.

Eiríkur Jónsson frá KÍ flytur inngangsorð og Guðlaug Kristjánsdóttir frá BHM samantekt fyrir hönd bandalaganna þriggja, en fundarstjórn verður í höndum Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB.

Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Þótt svo sé er fólk beðið um að skrá sig til þátttöku með því að 




ISAVIA gert að greiða bætur

posted Dec 8, 2011 9:51 AM by Andri Örn Víðisson

ISAVIA var í Hæstarétti í dag dæmt til að greiða fyrrum öryggisverði á Keflavíkurflugvelli 1,9 milljónir króna í miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar en manninum var sagt upp eftir að hann tilkynnti um veikindi en mætti þrátt fyrir það á tónleika.

Maðurinn starfaði sem öryggisvörður hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. ISAVIA yfirtók  ráðningarsamning hans þegar ISAVIA tók rekstri Keflavíkurflugvallar 1. janúar 2009. Manninum var hins vegar sagt upp störfum 29. maí 2009 og leystur undan vinnuskyldu. Í uppsagnarbréfinu voru að sögn mannsins ekki tilgreindar neinar ástæður uppsagnarinnar. Á fundinum hafi honum hins vegar verið tjáð að hann hefði sést á tónleikum að kvöldi sama dags og hann hafi verið fjarverandi úr vinnu vegna veikinda. Þetta munu hafa verið tónleikar sem haldnir voru 2. maí 2009 til heiðurs minningu Rúnars Júlíussonar. 

Maðurinn hélt því fram í málinu að við flutning úr starfi hefði hann haldið öllum þeim réttindum sem hann hafði hjá fyrri vinnuveitanda og uppsögn án undanfarandi áminningar hefði því verið óheimil. Á það féllst Hæstiréttur og því hafi uppsögnin verið ólögmæt. Er þetta þvert á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness sem sýknaði ISAVIA af kröfu mannsins.

Tekið af mbl.is

Veffréttabréf Starfsmenntar

posted Dec 7, 2011 6:41 AM by Andri Örn Víðisson

Desember útgáfa af veffréttabréfi Starfsmenntar er komið út. Smelltu hér til að lesa það.
Bent er á FFR er aðildarfélag að Starfsmennt. Starfsmennt býður uppá fjölbreytt úrval námskeiða bæði í staðarnámi sem og fjarnámi. Námskeið á vegum Starfsmenntar eru félagsmönnum FFR að kostnaðarlausu.

Opinn fundur um verðtryggingu

posted Nov 21, 2011 7:31 AM by Andri Örn Víðisson

BSRB efnir til opins fundar um verðtryggingu miðvikudaginn 23. nóvember kl. 12:00 - 13:20 í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um verðtryggð og óverðtryggð lán, kosti og galla verðtryggingarinnar og hvort raunhæft sé að afnema hana í náinni framtíð.

Verðtryggingin virðist ætla að halda áfram að vera eitt heitasta deiluefni samtímans. Mörg ólík sjónarmið eru uppi enda hafa ólíkar aðilar ólíkra hagsmuna að gæta þegar kemur að verðtryggingu lána. Þess vegna hefur BSRB fengið fulltrúa ólíkra hópa og hagsmunaaðila til að fjalla í stuttu máli um verðtrygginuna á þessum opna fundi og svara spurningum viðstaddra.

Þessir aðilar eru:
  • Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
  • Óskar Hafnfjörð Auðunsson, aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka
  • Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ
  • Andrea J. Ólafsdóttir, Hagsmunasamtökum heimilanna
  • Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR
Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, og minnt er á að fundurinn er öllum opinn. Fundurinn verður eins og áður sagði kl. 12:00 miðvikudaginn þann 23. nóvember.

Starfsmennt minnir á sig

posted Nov 9, 2011 8:20 AM by Andri Örn Víðisson

Það er alltaf nóg um að vera hjá Starfsmennt og nokkur fjöldi námsskeiða fer af stað nú í nóvember. Einnig styttist í næstu lotu Forystufræðslu BSRB en frekari upplýsingar um þau námsskeið sem boðið verður upp á næstu vikurnar má finna í nýjasta fréttabréfi Starfsmenntar.

Þau námsskeið sem í boði verða á vorönn eru svo öll að verða tilbúin og upplýsingar um þau birtast jafn óðum á vef Starfsmenntar. Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni og jafnframt er minnt á að allt nám og þjónusta setursins er félagsmönnum FFR að kostnaðarlausu og oft opið öðrum gegn gjaldi. Þá minnir Starfsmennt einnig á að starfsemin er komin í nýtt húsnæði að Ofanleiti 2, 5. hæð og hefur Starfsmennt einnig fengið nýtt símanúmer sem er 550-0060.

Félagsmaður FFR vinnur mál gegn íslenska ríkinu

posted Sep 21, 2011 10:08 AM by Andri Örn Víðisson   [ updated Sep 21, 2011 10:10 AM ]

Dómur féll við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær í máli félagsmanns Félags flugmálastarfsmanna ríkisins gegn íslenska ríkinu varðandi efndir starfslokasamnings. Í málinu greindi aðila á um hvort samningur V og Lögreglustjórans á Suðurnesjum um uppgjör vegna áunnins leyfis frá störfum og starfslok hafi verið skuldbindandi fyrir íslenska ríkið og hvort kröfum samkvæmt samkomulaginu hafi verið beint að réttum aðila. Niðurstaðan var að íslenska ríkið var dæmt til að greiða eftirstöðvar greiðslna samkvæmt samkomulaginu.
 
Málsatvik voru þau að V hóf störf hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli árið 1991 og starfaði við öryggisgæslu. Sætti starf hans á starfsævinni nokkrum breytingum en síðasta breytingin fól í sér að hann var starfsmaður Lögreglustjórans á Suðurnesjum frá árinu 2007. Í september 2008 gerði V og Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með sér samning um uppgjör vegna áunnins leyfis og starfslok V. Samningurinn fól í sér að V skyldi taka áunnið orlof, helgidagafrí og hvíldartíma og halda óbreyttum launum þar til leyfisréttindin væru fullnýtt. Að því loknu kæmi hann ekki aftur til starfa en héldi launum sínum (biðlaunum) ásamt vaktaálagi óskertum til 31. desember 2009. Starfsemi öryggisdeildar Lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem V hafði starfaði við, varð frá 1. janúar 2009 hluti af starfsemi Keflavíkurflugvallar ohf.
 
V fékk greidd laun frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum til ársloka 2008 og greidd 6 mánaða biðlaun frá samgönguráðuneytinu. Í júlí 2009 var V tilkynnt að látið yrði af greiðslunum þar sem ráðuneytið teldi sig fyrir misskilning hafa tekist þær á hendur. Fyrir dómnum var deilt var um hvort samningur V og Lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi verið skuldbindandi fyrir íslenska ríkið og hvort kröfum samkvæmt samkomulaginu hafi verið beint að réttum aðila.
 
Í forsendum að niðurstöðu dómsins segir að V hafi verið ríkisstarfsmaður og fóru réttindi hans og skyldur eftir lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, ráðningarsamnings og kjarasamnings Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR). Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sé ekki ákvæði um starfslokasamninga og ekki hafi verið sýnt fram á að neitt standi í vegi fyrir að slíkur starfslokasamningur sé gerður enda eru þeir nokkuð algengir. Jafnframt var ekki fallist á málsástæðu íslenska ríkisins um að greiðslur samkvæmt samkomulaginu hafi ekki rúmast innan þeirra fjárheimilda sem Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafði samkvæmt fjárlögum eða að V ætti að bera hallann af því að slík heimild hafi ekki verið til staðar eða henni ekki aflað enda var enginn fyrirvari um slíkt í samkomulagi hans um starfslok. Loks hefði ekki verið sýnt fram á að samkomulagið þyrfti staðfestingu dómsmála- eða fjármálaráðuneytis til að fá staðfestingu.
 
V lét af störfum hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum áður en Keflavíkurflugvöllur ohf. tók yfir umrædda öryggisgæslu. Íslenska ríkið þótti ekki hafa sýnt fram að skuldbindingar Lögreglustjórans á Suðurnesjum samkvæmt starfslokasamningum hefði færst yfir til Keflavíkurflugvallar ohf. á grundvelli aðilaskipta í skilningi laga nr. 72/2002, um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum
 
Var íslenska ríkið dæmt til að greiða V sem nam eftirstöðvum greiðslum starfslokasamnings ásamt dráttarvöxtum.
 
Dóminn í heild sinni má nálgast hér.

Fræðslunámskeið um vinnuvernd

posted Aug 30, 2011 7:30 AM by Andri Örn Víðisson   [ updated Aug 30, 2011 7:33 AM ]

http://www.bsrb.is/files/Vinnueftirliti%C3%B0%20-%20logo_985388887.png
Úrval stuttra framhaldsnámskeiða í vinnuvernd fyrir öryggisstarfsmenn, öryggisverði og aðra sem huga að vinnuvernd eru í boði á þessari önn hjá Vinnueftirlitinu. Þetta eru svokölluð örnámskeið, þau eru þriggja tíma löng og kosta kr. 11.900 kr. 

Kennt er í Bíldshöfða 18, 2.hæð, milli kl. 13 - 16. Skráning er á heimasíðunni www.vinnueftirlit.is eða í síma 550 4600.

Námskeiðin sem í boði eru:
  • Líkamsbeiting við vinnu. 14. sept. 
  • Öryggismenning á vinnustað. 15. sept.
  • Vinna í lokuðu rými. 20. sept.
  • Áhættumat fyrir lítil fyrirtæki (starfsmenn 1 til 6). 22. sept.
  • Asbest - er það hættulegt? 28. sept.
  • Þrýstibúnaður og öryggi. 5. okt.
  • Líffræðilegir skaðveldar. 11. okt.
  • Einelti á vinnustað - Stefna og viðbragðsáætlun. 12. okt.
  • Fallvarnir - vinna í hæð. 13. okt.
  • Hávaði og titringur - vandamál á vinnustað? 20. okt.
  • Hiti - Kuldi - Raki, vandamál á vinnustað? 25. okt.
  • Efnanotkun á vinnustað og efnaáhættumat. 27. okt.
  • Eldhús og mötuneyti - hættuleg störf. 1. nóv.
  • Rannsóknir vinnuslysa. 17. nóv.
Einnig eru hin skyldubundnu vinnuverndarnámskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á vinnustöðum, haldin einu sinni í mánuði. Þau eru opin öllum sem áhuga hafa á að kynna sér vinnuvernd almennt. Kennsla stendur yfir í tvo daga frá 9 - 16. Námskeiðin í haust verða á eftirfarandi dagsetningum: 7. - 8. sept., 4. - 5. okt., 1. - 2. nóv. og 29. - 30. nóv.

Námskeið í gerð áhættumats starfa eru einnig haldin mánaðarlega en þar fá menn fræðslu og hjálp við að komast af stað með áhættumatsgerðina í fyrirtækinu. Áhættumatsnámskeið verða á eftirfarandi dagsetningum: 13. sept., 18. okt., 8. nóv. og 29. nóv.

Vinnuvélanámskeið - réttindanám (3 dagar, þri. mið. og föst.)
Frumnámskeið réttindanáms á vinnuvélar hefjast svo á eftirfarandi dagsetningum:
13. sept., 11. okt. 15. nóv. og 13. des. en þau standa í þrjá daga hvert.

Kjarasamningur við Isavia samþykktur í rafrænni kosningu

posted Jul 12, 2011 8:58 AM by Andri Örn Víðisson

Klukkan 11 í morgun lauk kosningu um kjarasamning FFR við Isavia. Kosningin fór fram með rafrænum hætti þannig að félagsmenn fengu sendan kjörseðil í tölvupósti og gafst þannig kostur á að taka afstöðu um samninginn.
 
Á kjörskrá voru 317. 110 tóku þátt eða 34,7% kjörsókn. 88 sögðu já, 15 sögðu nei og 7 skiluðu auðu. Samningurinn er því samþykktur með 80% greiddra atkvæða.
 
Nánari upplýsingar veitir formaður félagsins, Kristján Jóhannsson.
 

Kosning hafin um kjarasamning við Isavia

posted Jul 7, 2011 6:19 PM by Andri Örn Víðisson   [ updated Jul 7, 2011 6:41 PM ]

Kosning um kjarasamning FFR við Isavia er nú í fullum gangi og skorar stjórn félagsins á félagsmenn að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Sendur hefur verið út tölvupóstur á félagsmenn sem inniheldur kjörseðil og mjög einfalt er að taka þátt í kosningunni.
 
Vakni spurningar um samningana eða kosningarnar hvetjum við félagsmen til að setja sig í samband við félagið!
 
Kosningunni lýkur þriðjudaginn 12. júlí kl. 11.

Kynning á nýjum kjarasamningi

posted Jul 2, 2011 11:28 AM by Andri Örn Víðisson   [ updated Jul 2, 2011 11:34 AM ]

Formenn FFR - félags flugmálastarfsmanna ríkisins og SFR-stéttarfélags í almannaþjónustu boða til fundar mánudaginn 4. júlí kl. 17:30 í Keflavík. Fundurinn verður í fundarsal á þriðjuhæð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

FFR heldur einnig fund í Reykjavík þriðjudaginn 5.júlí í Fræðslusetri Isavia kl. 16.

Á fundunum verður nýgerður kjarasamningur félaganna kynntur og fyrirspurnum um hann svarað.

Hægt er að nálgast samninginn hér!

Félagar eru hvattir til að mæta.

Kristján Jóhannsson
Formaður FFR

Árni Stefán Jónsson
Formaður SFR

1-10 of 17